G.Skill 64GB (2x32GB) Ripjaws V 3600MHz DDR4

G.Skill er framleiðandi sem hefur löngum verið í uppáhaldi hjá okkur í Kísildalnum. Þeir hafa getið sér góðs orðstírs bæði fyrir hágæða framleiðslu og stöðugleika í keyrslu. Í breiðri vörulínu þeirra ættu allir að geta fundið minni sem uppfylla þær þarfir sem um ræðir hverju sinni.

Þessi minni sameina mikla geymslurýmd og bandbreidd og henta vel fyrir nýjustu kynslóðir örgjörva frá AMD og Intel.
Minnin ræsa sig á SPD stillingum þegar BIOS er á grunnstillingum. Til að nýta sér fullan hraða minnisins þarf að kveikja á XMP/DOCP/A-XMP í BIOS. Stöðugleiki í keyrslu getur takmarkast af getu örgjörva og móðurborðs. Fyrir frekari upplýsingar um vöru heimsækið www.gskill.com

PC4-28800
CL 18-22-22-42
Dual-Channel

39.990 kr.

Smelltu hér fyrir ítarlegri upplýsingar um þessa vöru
Shopping Cart