ASRock Z890 Nova WiFi ATX Intel LGA1851 móðurborð

Eitursvalt og hrikalega vel útilátið móðurborð fyrir Arrow Lake (Ultra 200 Series) örgjörva með veglegum fjölda af M.2 raufum og ríkulegum tengimöguleikum. Klettstöðugt og kröftugt spennuvirkið sér til þess að örgjörvinn fær allt það afl sem hann þarf án þess að blása úr nös og stórar kæliplötur halda bæði M2 diskum og kubbasettinu vel kældu við jafnvel erfiðustu aðstæður. Fjöldi hraðra USB tengja er á afturhlið og nettengimöguleikar eru í betri kantinum með tveim nettenglum (5Gigabit og 2.5Gigabit) og WiFi 7 þráðlausu netkorti með bluetooth 5.4 stuðningi. Hljóðlausnin er jafnframt vönduð og ýmis þægindi eins og Dr.Debug ræsivaktari og BIOS Flashback takki á afturhlið reka lokahöggið á meistarasmíðina. Magnað borð fyrir alvöru mulningsvélar.

Intel Z890
4xDDR5
4xSATA3
1xM.2 Blazing & 5xM.2 Hyper
5G + 2.5G LAN
WiFi7(BE) + Bluetooth 5.4
USB3.2 Gen2x2 type-C
2 x Thunderbolt 4
HDMI

76.990 kr.

Smelltu hér fyrir ítarlegri upplýsingar um þessa vöru
Drif
RAID stuðningur 0, 1, 5 & 10 (Z890)
SATA-tengi 4 x SATA3 (Z890)
Önnur disktengi 1 x M.2 Blazing (128Gb/s) + 5 x M.2 Hyper(64Gb/s)
Eiginleikar móðurborðs
Kubbasett Intel Z890
PCIe raufar 1 x Gen5 (x16) + 1 x Gen4 (x4)
Stærð borðs 30,5×24,5cm
Stærðarform ATX
Sökkull LGA1851
Örgjörvastuðningur Arrow Lake (Ultra 200 Series)
Innbyggðar stýringar
Innbyggt hljóðkort ALC4082 Nahimic Audio
Innbyggt netkort 5 Gigabit LAN (Realtek RTL8126) + 2.5 Gigabit LAN (Killer E3100G)
Þráðlaust netkort Dual Band 802.11ax WiFi 7 + BT v5.4 Module
Minni
Fjöldi minnisraufa 4 x DDR5 (288 pinna)
Hámarks minni 128GB
Minnisstaðall Allt að DDR5-9600
Tegundarlýsing
Framleiðandi ASRock
Tegundarheiti Z890 Nova WiFi
Yfirflokkur Móðurborð
Tengi á móðurborði
COM-tengi innvær haus
Hljóðkorts-tengi 2 mini-jack tengi
RGB tengi 1 x 4-pin RGB + 3 x 3-pin Addressable RGB
S/PDIF út 1 x optical
Skjátengi HDMI2.1 (4K@120Hz) + 2 x Thunderbolt 4 (8K@60Hz)
USB tengi að aftan 2 x USB2.0, 4 x USB3.2 Gen1, 4 x USB3.2 Gen2 og 2 x Thunderbolt 4
USB tengi á borði 4 x USB2.0 (2 tvöfaldir hausar) 4 x USB3.2 Gen1 (2 tvöfaldir hausar) og 1 x USB3.2 Gen2x2 type-C
Viftutengi 1 x CPU (1A 4-pin), 1 x CPU, 1 x Water Pump & 4 x Chasis/WP (3A 4-pin)

 

Shopping Cart