Prentþjónusta

Eniak ehf er þjónustu- og endursöluaðili fyrir Kjaran ehf sem selur og þjónustar Konica Minolta á Íslandi.
Við hjá Eniak tökum einnig að okkur uppsetningar og bilanagreiningar á öllum öðrum tegundum prentara.

Hagræðing

Við aðstoðum þig við val á hagkvæmasta prentbúnaði í samræmi við kröfur um afköst, fjárfestingar- og rekstrarkostnað. Óhagkvæm prenttæki eru tekin úr umferð. Prentumsjónarkerfi stýrir útprentunum á hagkvæmustu tæki sem völ er á á hverri starfsstöð. Prentreglur ráða því hvort tiltekin skjöl eru prentuð í lit eða svörtu.

Öryggi

Skjöl prentast ekki út fyrr en starfsmenn auðkenna sig við prentara, annaðhvort með auðkenniskorti eða notendanafni og lykilorði. Útprentanir liggja því aldrei ósóttar við prentara. Ef prentari bilar er mjög auðvelt að ræsa útpretun skjala á hvaða prentara sem er sem tengdur er prentumsjónarkerfinu.

Eftirlit

Prentumsjónarkerfi skráir allar útprentanir, hver prentar, hvað er prentað, hvenær það er prentað og hvar. Prentumsjónarkerfi heldur utan um prentkostnaði fyrir hverja útprentun. Skýrslur sýna samandreginn kostnað fyrir hvern prentara, starfsmann eða deild. Aukin yfirsýn gefur stjórnendum færi á enn meiri hagræðingu. Virkt aðhald eykur kostnaðarvitund starfsmanna og leiðir til færri útprentanna.

Umhverfisvernd

Reynslan hefur sýnt að notkun prentumsjónarkerfa dregur úr fjölda útprentanna um allt að 30%. Það leiðir af sér minni notkun á pappír og prentdufti.

Auk þess

Prentumsjónakerfið hefur upp ýmislegt fleira að bjóða, eins og prentun úr snjallsímum og spjaldtölvum. Allir notendur hafa aðgang að sinni prentbiðröð í gegnum vefviðmót og geta fylgst með eigin notkun frá degi til dags og uppsöfnuðum kostnaði þar að lútandi.
Eniak setur upp prentumsjónarkerfið og sér um rekstur þess. Engir aðrir prentþjónar eru nauðsynlegir innan fyrirtækisins. Eniak útvegar allan prentbúnað og sér um viðhald hans og rekstur út samningstímann.

Niðurstaðan er einfaldari rekstur:
  • Aukið öryggi
  • Meira aðhald
  • Færri útprentanir
  • Minni pappírsnotkun
  • Lægri prentkostnaður
  • Aukin umhverfisvernd
Shopping Cart